Ljósmyndasýning Friðgeir Helgason

Laugardaginn 16. janúar kl. 15 verður sýningin Stemning opnuð í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í Grófarhúsi. Á sýningunni eru ljósmyndir sem Friðgeir Helgason hefur tekið bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum en einnig  verða sýnd brot úr heimildamynd um Friðgeir sem Þorgeir Guðmundsson kvikmyndagerðarmaður vinnur að.
S. Björn Blöndal, formaður borgaráðs, opnar sýninguna. Sýningin er hluti af dagskrá Ljósmyndahátíðar Íslands 2016 sem stendur yfir þessa dagana.
7_SM_30_book

Tengiliðir:
Friðgeir Helgason, ljósmyndari (fridgeir.helgason@gmail.com) s: 612-2720
Íris Gyða Guðbjargardóttir, sérfræðingur (iris.gyda.gudbjargardottir@reykjavik.is) s: 849-9430.

Friðgeir Helgason
Stemning
16.01. – 15.05. 2016

„Engu virðist skipta hvort ljósmyndarinn er staddur í New Orleans eða á Fáskrúðsfirði, ólíkir heimar verða að einum heimi, séð í gegnum linsuna hans.“    
-Auður Jónsdóttir rithöfundur
6_NM_10_book
Friðgeir fæddist í Vestmannaeyjum árið 1966. Þegar hann var aðeins sex ára gamall braust út eldgos sem leiddi til þess að fjölskylda hans og aðrir íbúar neyddust til að yfirgefa eyjuna. Hús fjölskyldunnar fór undir hraun og þau sneru ekki aftur. Friðrik eyddi mótunarárum sínum í Reykjavík en hélt ungur út í hinn stóra heim. Hann hætti í menntaskóla þegar forsætisráðherra Íslands, Steingrímur Hermannsson, afhenti honum flugmiða sem hann vann í rokkspurningakeppni.

Friðgeir ílengdist í Louisiana í Bandaríkjunum og þar sem hann vann sér inn gott orðspor sem kokkur í New Orleans. Um tíma var Friðgeir heimilislaus og barðist við fíkn, vandi m.a. komur sínar á hina alræmdu götu, Skid Row, í Los Angeles. Árið 2004 náði Friðgeir botninum, skráði sig í meðferðarúrræði hjá Midnight Mission og útskrifaðist þaðan árið 2006. Í kjölfarið nam hann ljósmyndun og kvikmyndun við Los Angeles City College á árunum 2006-2009. Friðgeir fann fljótt sína sterku rödd og einstöku sýn sem hefur skapað honum sérstöðu.
„Ljósmyndirnar á sýningunni eru teknar á þvælingi um þau tvö svæði sem eru mér kærust, Ísland og Louisiana. Ég vann að verkinu frá 2008 til 2013. Myndirnar eru allar teknar á Kodak-filmu og ég stækka filmurnar á gamla mátann. Fyrir mér er ekkert skemmtilegra en að keyra stefnulaust um þjóðvegi, með gamla góða Pentaxinn og slatta af filmum í skottinu. Stoppa í vegasjoppu, spjalla við innfædda og fá mér eitthvað gott í gogginn. Vera fullkomlega gegnsósa í góðri stemningu og taka ljósmyndir.“ –Friðgeir Helgason

January 12, 2016
PRESS RELEASE

The exhibition, „Mood“, will be opened at the Reykjavík Museum of Photography on Saturday January 16 at 15:00 (3 pm). The exhibition includes photos by Friðgeir Helgason taken both in Iceland and in The United States and parts of a documentary about Helgason that the filmmaker Þorgeir Guðmundsson is currently working on
.
S. Björn Blöndal, the Chairman of the City Executive Council will open the exhibition. The exhibition is a part of the Icelandic Photography Festival 2016.

For further information please contact:
Friðgeir Helgason (fridgeir.helgason@gmail.com) s: +354-612-2720
Íris Gyða Guðbjargardóttir specialist (iris.gyda.gudbjargardottir@reykjavik.is tel: +354-849-9430).