Ljósmyndir Þorsteins Jósepssonar

Ljósmyndir Þorsteins Jósepssonar 

Þorsteinn Jósepsson var víðförull ferðalangur, rithöfundur og blaðamaður á Vísi, auk þess að vera mikilvirkur ljósmyndari. Hann vann gríðarlegt verk með því taka ljósmyndir um land allt, af hverri einustu sýslu og stórum hluta hálendisins, staðháttum og mannlífi, á árunum um 1930 til 1967.

Uppistaðan í sýningunni eru einstakar myndir úr safninu og mynda textar Steinars Arnar Atlasonar, heimspekings um þær.

Í  textunum beinir Steinar sjónum að inntaki myndanna, Þorsteini sjálfum, ljósmyndasögunni og kenningum um ljósmyndun í sömu andrá. Þetta er fyrsta yfirlitssýningin á ljósmyndum Þorsteins Jósepssonar.

Þorsteinn Jósepsson var borgfirðingur og fæddist á Signýjarstöðum í Hálsasveit. Hann varð á sínum tíma þekktur sem víðförull ferðalangur, rithöfundur og blaðamaður á Vísi, og ekki síst sem ljósmyndari. Í Borgfirskum æviskrám segir um Þorstein meðal annars: „Þorsteinn var ötull og óþreytandi ferðamaður og hafði ferðast um allar byggðir landsins. Hann var afburða snjall ljósmyndari, átti stórmerkt ljósmyndasafn og hlaut verðlaun fyrir landslagsmyndir sínar. Prýða myndir hans margar af Árbókum Ferðafélagsins og Héraðssögu Borgarfjarðar.”

Þorsteinn lærði aldrei ljósmyndun en vann þrátt fyrir það gríðarlegt verk með því taka ljósmyndir af nær öllu landinu, hverri einustu sýslu og stórum hluta hálendisins, staðháttum og mannlífi. Það var þegar hann dvaldi í Þýskalandi og Sviss sem yfir Þorstein kom „stjórnlaus löngun“ til að taka myndir af undrum heimsins og þá rauk hann í næstu ljósmyndaverslun og fjárfesti í góðri myndavél. Eftir það varð ekki aftur snúið. Frændi Þorsteins og nafni Þorsteinn Þorsteinsson frá Húsafelli minnist þess að hann hafi alltaf haft „með sér þrífót og filtra til að ná betur sérkennum himins og landlags“, að hann hafi alltaf vandað myndatökur en „miðaði ekki af handahófi eins og flestir gerðu heldur stillti vélinni á þrífót, mældi ljós og íhugaði áður en mynd var tekin.“ Þorsteinn Jósepsson þótti mjög frambærilegur ljósmyndari og myndir hans birtust í bókum á borð við Ísland í myndum og Landið þitt. Ljósmyndir Þorsteins hafa afskaplega mikið heimildargildi sé litið til hversu yfirgripsmikil og margþætt skráning hans á landi og lífsháttum var, og það er jafnframt ástæðan fyrir því safn Þorsteins er eitt það heildstæðasta og merkasta frá miðri síðustu öld. 
Steinar Örn Atlason

ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík