Málstofa – Jónína Guðnadóttir

Málstofa – Jónína Guðnadóttir
Sunnudag 12. apríl kl. 14
 
Sunnudaginn 12. apríl kl. 14 gefst gestum Hafnarborgar tækifæri til að kynnast áhugaverðum ferli Jónínu Guðnadóttur sem nú spannar tæplega fimmtíu ár. Sýndar verða myndir af verkum frá öllum ferlinum og munu Pétrún Pétursdóttir og Ólöf K. Sigurðardóttir ræða við listakonuna um þær hugmyndir sem að baki liggja.
Jonina Gudnadottir2Jonina mynd af facebookJónína Guðnadóttir (f. 1943) hefur um árabil verið í  framvarðarsveit íslenskra leirlistamanna og vakti snemma athygli fyrir einstaka nytjahluti. Hún hefur jafnframt þróað sjálfstætt myndmál í listaverkum sem bera þekkingu hennar á leirnum gott vitni um leið og einstakt formskyn og hugmyndauðgi eru áberandi.

Ferill Jónínu hófst upp úr miðjum sjöunda áratugnum en þá hafði hún lagt stund á myndlistarnám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og við Konstfack í Stokkhólmi. Grunnur Jónínu er í leirlist og hún hefur um árabil verið í framvarðarsveit íslenskrar leirlistar um leið og hún var öflugur brautryðjandi þess að rjúfa tengslin við nytjalist og nota leirinn sem efnivið sjálfstæðra listaverka. Frá því hún hélt sína fyrstu einkasýningu í Unuhúsi árið 1968 hafa verk hennar verið sýnd víða í virtum sýningarsölum og söfnum bæði hér heima og eJonina Gudnadottir1rlendis. Stór sýning var á verkum Jónínu á Kjarvalsstöðum árið 1997 en verk hennar hafa jafnframt verið sýnd reglulega í Hafnarborg. Jónína hefur ætíð vakið athygli fyrir þá gríðarmiklu vinnu og hugsun sem hún leggur í verk sín. Þau einkennast af afar vel mótuðum og framsæknum stíl í úrvinnslu og framsetningu viðfangsefnanna.
Í Sverrissal Hafnarborgar stendur nú yfir sýningin Vörður. Í verkunum leitar Jónína aftur til bernsku sinnar og mótunarára um miðja síðustu öld. Hún finnur hugmyndum sínum form í skúlptúrum og veggverkum þar sem saman fara fjölbreyttur efniviður á borð við steinsteypu, gler og leir.

Nánari upplýsingar veita:
Áslaug Friðjónsdóttir, upplýsingafulltrúi Hafnarborgar, s. 585 5790, 694 3457
Jónína Guðnadóttir, s. 895 6690