Marta María Jónsdóttir

Marta María Jónsdóttir Listamannsspjall

Sunnudagur 27. ágúst kl. 15

Marta-MariaSunnudaginn 27. september kl. 15 mun listakonan Marta María Jónsdóttir fjalla um verk sín á sýningunni Heimurinn án okkar. Sýningin er haustsýning Hafnarborgar.
Marta Maria JonsdottirMarta María Jónsdóttir (1974) lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla  Íslands árið 1998 og MFA-námi frá Goldsmiths College í London árið 2000. Hún stundaði einnig nám í teikningu og hreyfimyndagerð við London Animation Studio, í Central Saint Martins College of Art and Design og lauk Postgraduate Diploma í Character Animation árið 2004.
Á sýningunni Heimurinn án okkar verða leiddir saman íslenskir listamenn sem vinna með hugmyndir um alheiminn í verkum sínum og varpa ljósi á ákveðna þætti hans hvort sem um er að ræða hið nálæga eða hið fjarlæga, micro eða macro. Þannig eru hinar ýmsu víddir alheimsins afhjúpaðar um leið og leitað er samfellu og heildar. Nánar um sýninguna hér.
Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni tilheyra ólíkum kynslóðum og eru verkin unnin í ýmsa miðla. Ásamt Steinu eru það: Björg Þorsteinsdóttir (1940), Brynhildur Þorgeirsdóttir (1955), Finnur Jónsson (1892-1993), Gerður Helgadóttir (1928-1975), Marta María Jónsdóttir (1974), Ragnar Már Nikulásson (1985) og Vilhjálmur Þorberg Bergsson (1937).
Sýningarstjórar sýningarinnar eru Aðalheiður Valgeirsdóttir og Aldís Arnardóttir en sýningartillaga þeirra varð fyrir valinu þegar kallað var eftir tillögum að haustsýningu Hafnarborgar 2015.

Nánari upplýsingar veitir:
Áslaug Friðjónsdóttir, upplýsingafulltrúi Hafnarborgar, s. 694-3457