Midgard Base Camp opnar á Hvolsvelli

Laugardaginn 13. maí hefst nýr kafli hjá fjölskyldu- og ferðaþjónustufyrirtækinu Midgard á Hvolsvelli sem hefur rekið ferðaskrifstofuna Midgard Adventure frá árinu 2010.
Í nýjustu viðbótinni, Midgard Base Camp, er að finna gistimöguleika sem falla bæði undir hostel og hótel flokkanir þar sem tæp 50 rúm eru í boði bæði í hótelherbergjum og kojugistingu. Mikið hefur verið lagt í smíði á innanstokksmunum þar sem áhersla er lögð á þægindi í heimasmíðuðum uppábúnum lokrekkjum með myrkvunargluggatjöldum, rafmagni og góðum dýnum.
Inline image 1
(Mynd – Benjamin Hardman)
Hótelherbergin hafa upp á allt að bjóða fyrir þá kröfuharðari sem vilja dvelja út af fyrir sig. Snyrtileg baðherbergi, góð rúm og einstakt útsýni er meðal þess sem þessir gestir fá að njóta. Svo ekki sé talað um heitan pott og gufubað sem staðsett er á þaki Midgard Base Camp með útsýni yfir Þórsmörkina og Eyjafjallajökul. Þetta svæði er aðgengileg fyrir alla þá sem gista í húsinu.
Inline image 2
(Mynd – Benjamin Hardman)
Verið er að þróa matseðla og vinna að því að opna 75 sæta veitingastað í húsinu þar sem áhersla verður lögð á heiðarlega matargerð í hollari kantinum á góðum verðum. Stefnt er að því að veitingastaðurinn opni um mánaðarmótin maí / júní með fullbúnum matseðli. Veitingasalirnir eru þó klárir og er leyfi fyrir 150 manns sem er tilvalið fyrir hverslags viðburði.
Í dag er boðið upp á morgunverðar- og hádegishlaðborð og eru allir velkomnir. Hópabókanir og aðrar fyrirspurnir berist á sleep@midgard.is. Morgunverðarhlaðborðið er klárt frá 7:00 á morgnana og er barinn opinn til 23:00 á kvöldin alla daga.
Inline image 3
(Mynd – Karl Petersson)

 

Í Midgard Base Camp er einnig að finna verslun og leigu á útivistarfatnaði og búnaði til fjallaferða í samstarfi við 66°Norður og Fjallakofann. Verslunin er öllum opin, hlaðin gæða útbúnaði til fjallaferða og útivistar og úrvalið eftir árstíðum.
Mikið verður lagt upp úr góðri upplýsingagjöf til ferðamanna og er öllum velkomið að kíkja við í gott kaffi, kökusneið og fá ráðgjöf fyrir ferðalagið og upplýsingar um nátturuna á svæðinu eða einfaldlega skella sér í ferð með Midgard Adventure (www.midgard.is).

Midgard Base Camp er staður til þess að heimsækja á ferðalaginu um náttúruperlur suðurlandsins. Þar er vettvangur til þess að deila sögum yfir köldum eða heitum drykk, hlaða rafhlöðurnar, hlusta á sögur annarra og kynnast þeim sem sækja Ísland heim allt árið.
Inline image 4
(Mynd – Benjamin Hardman)
Opnunarpartý verður laugardaginn 13. maí næstkomandi frá 16:00 til 18:00 þar sem boðið verður upp á léttar veitingar og kynningu á húsinu og starfseminni. Eftir kl. 18:00 verður svo blásið í Eurovisionpartý, “happy hour” og lifandi tónlist fram á kvöld.
Midgard Base Camp