Ný þjóðlagaplata YLJU og útgáfutónleikar í Bæjarbíói

Ný þjóðlagaplata YLJU og útgáfutónleikar í Bæjarbíói

DÆTUR
Þann 12. október næstkomandi gefur YLJA út sína þriðju breiðskífu, Dætur. Platan er þjóðlagaplata þar sem þær Bjartey og Gígja hafa sveipað lögin sínum einstaka blæ með hjálp nokkurra af færustu hljóðfæraleikurum þeirra kynslóðar. Platan verður gefin út á bæði geisladisk og vínil auk þess sem henni verður dreift á helstu tónlistarveitum.

Upptökustjórn var í höndum Guðmundar Óskars Guðmundssonar og fóru upptökurnar fram í Stúdíó Sjampó á vordögum 2018. Útsetningar voru samvinnuverkefni Guðmundar Óskars, Gígju og Bjarteyjar auk þess sem þær fengu góða hjálp frá þjóðfræðingnum Pétri Húna við textavinnu og gerð bókarinnar sem fylgir plötunum sem er stútfull af fróðleik um þjóðlögin öll. 9 af 10 lögum plötunnar eru þjóðlög samkvæmt skilgreiningu en eitt þeirra “Heyr himna smiður” eftir Þorkel Sigurbjörnsson stendur þar utan þó það hafi vissulega verið kosið eftirlætis lag þjóðarinnar og stendur okkur öllum nærri.

Mikið var lagt í útlit plötunnar og er grafík er unnin af Bobby Breiðholt auk þess sem Bjartey sjálf sá um myndskreytingarnar. Plötunni verður dreift um allt land og verður hún komin í allar helstu verslanir fyrir útgáfutónleikana í Bæjarbíói.

Þjóðin tekur þátt
í haust var sett í gang hópfjármögnun á www.karolinafund.is þar sem þær settu markið hátt og ætluðu að safna 10.000 evrum til þess að ljúka gerð plötunnar og koma henni í framleiðslu. Það má segja að viðbrögðin hafi farið fram úr þeirra björtustu vonum þar sem þær náðu takmarkinu og rúmlega það nokkrum dögum áður en söfnuninni lauk. Gríðarlega þakklátar og stoltar hafa þær því náð að ljúka gerð plötunnar með aðstoð þjóðarinnar sem hefur bersýnilega mikinn áhuga á því að heyra gömlu lögin lifna við í nýjum útsetningum.

10 ára afmælis- og útgáfutónleikar
20. október verður útgáfunni svo fagnað í Bæjarbíói í Hafnarfirði þar sem platan verður leikin í heild sinni auk nokkurra vel valinna Ylju-laga sem ættu að vera orðin flestum kunn. Þar munu þær Gígja og Bjartey koma fram með stórri hljómsveit og kór og verða 11 tónlistarmenn á sviðinu þegar mest lætur.

Það er ekki aðeins útgáfan sem er tilefni til þess að halda rækilega veislu heldur hafa þær vinkonurnar nú starfað saman í 10 ár og komið víða við. Þær eiga að baki 2 breiðskífur, ótal tónleika innan lands sem utan, tilnefningar til íslensku tónlistarverðlaunanna og margt fleira. Allt frá því að þær kynntust í kór Flensborgarskólans hafa þær haft mestan áhuga á íslensku þjóðlögunum og var því kjörið að fagna þessum stóra áfanga með að ráðast í gerð veglegrar þjóðlagaplötu.

Miðasala er hafin á www.tix.is og hefjast tónleikarnir stundvíslega kl. 21:00.