Ólöf Kristín Sigurðardóttir

 

Leiðsögn sýningarstjóra: Ólöf Kristín Sigurðardóttir


Laugardag 27. maí kl.14.00 í Ásmundarsafni

Ólöf Kristín Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur og sýningarstjóri sýningarinnar List fyrir fólkið í Ásmundarsafni, segir frá ferli Ásmundar og verkum hans.

List fyrir fólkið er yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara. Sýningunni er ætlað að auka áhuga samtímans á höggmyndum Ásmundar og dýpka þekkingu og skilning á myndlist þessa merka listamanns. Framsetning verkanna á sýningunni er nýstárleg og brýtur upp hefðbundna umgjörð sögulegra höggmynda hér á landi. Ásmundarsafn er einstök bygging og með djarfri framsetningu fá verkin nýtt og kröftugt samhengi.