Opin vinnustofa um skipulag í Hafnarfjarðar

Þinn staður – Okkar bær.
Opin vinnustofa um skipulag í Hafnarfjarðar.

Miðvikudaginn 9. mars kl. 17 opnar vinnustofan Þinn staður – Okkar bær í Hafnarborg þar sem rýnt er í það sem er efst á baugi í framkvæmdum og skipulagsmálum í miðbæ Hafnarfjarðar og aðliggjandi svæðum. Ýmsir viðburðir verða á dagskrá í tengslum við vinnustofuna. Til að mynda gönguferðir um áhugaverð svæði, ljósmyndasýning, umræðufundir um ýmis málefni sem og vinnusmiðja sem Maria Lisogorskaya frá Assemble hópnum mun stýra. En Assemble hópurinn hlaut hin virtu Turnerverðlaun síðast liðið haust. Sýningarstjóri er Magnea Guðmundsdóttir, arkítekt.

Hafnarborg ásamt Umhverfis og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðar og Markaðsstofu Hafnarfjarðar standa sameiginlega að opinni vinnustofu þar sem helstu framkvæmdir og skipulagsverkefni í miðbæ Hafnarfjarðar og nágrenni hans verða kynnt. Samþætting grasrótarstarfs og starfs skipulagsyfirvalda verður skoðuð sérstaklega með aðstoð frá Mariu Lisogorskaya frá Assemble. Skipulag og hönnun umhverfis skiptir okkur öll miklu máli og getur haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir það mannlíf sem ætlað er að dafna á hverjum stað. Mikilvægt er að sem flestar raddir fái að hljóma í skipulagsvinnunni og tekið sé tillit til óska þeirra sem eiga að gæða hið byggða umhverfi lífi með nærveru sinni. Í þessari vinnustofu gefst almenningi tækifæri til að ræða áherslur skipulagsyfirvalda og koma með ábendingar um það sem vel er gert og hvað má bæta.

Vinnustofan er hluti af Hönnunarmars 2016.

DAGSKRÁ:
Miðvikudagur 9. mars kl. 17
-Opnun vinnustofu stutt kynning.
Fimmtudag 10. mars kl. 20
Ganga um græn svæði
-Þráinn Hauksson landslagsarkitekt leiðir göngu, segir frá gönguvænu umhverfi og mikilvægi grænna svæða við þéttingu byggðar. Gengið frá Hafnarborg.

Föstudag 11. mars kl.13-17
Vinnustofa um Strandgötu og miðbæinn
-Maria Lisogorskaya frá Assemble hópnum í London leiðir vinnustofu um miðbæ Hafnarfjarðar, hvernig má virkja gæði í umhverfinu og nálgast þróun á forsendum bæjarins. Þátttakendur skrá sig með tölvupósti á [email protected].

Laugardag 12. mars kl. 13-15
Spurt og svarað
-Fulltrúi skipulags svarar spurningum gesta um verkefnin á sýningunni.

Sunnudag 13. mars kl. 13-15
Módel af Strandgötu
-Fimm metra langt módel af Strandgötu verður smíðað úr pappa og myndskreytt. Börn og fullorðnir á öllum aldri hvattir til að mæta.

Þriðjudag 15 mars kl. 20
Úthverfi eða bæjarbragur?
-Samtal um framtíðaruppbyggingu í Hafnarfirði. Hrafnkell Proppé svæðisskipulagsstjóri kynnir Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040 sem var samþykkt 2015 og starfshópur á vegum Hafnarfjarðarbæjar kynnir nýútkomna skýrslu um möguleika uppbyggingar í Hafnarfirði. Allir íbúar og áhugafólk um framtíð Hafnarfjarðar hvattir til að mæta.

Miðvikudag 16. mars kl. 20
Borgarlína – gönguferð
-Lilja G. Karlsdóttir samgönguverkfræðingur leiðir göngu um mögulega Borgarlínu framtíðarinnar. Gengið frá Hafnarborg.

Fimmtudag 17. mars kl. 17-19
Miðbær morgundagsins
-Markaðsstofa Hafnarfjarðar býður rekstrar- og hagsmunaaðilum í miðbænum til fundar um framtíð svæðisins. Kári Eiríksson arkítekt opnar umræðuna. Þátttakendur skrá sig með tölvupósti á [email protected].
Laugardag 19. mars kl. 13
Flensborgarhöfn í þróun
-Magnea Guðmundsdóttir verkefnastjóri kynnir lýsingu á skipulagsverkefni Flensborgarhafnar sem hefur staðið yfir í rúmt ár.
Fimmtudagur 31. mars kl. 20
Skipulag hversdagsleikans
-Stas Zawada ljósmyndari sýnir og segir frá Hafnarfirði hversdagsins í gegnum myndir sínar og Þormóður Sveinsson skipulagsstjóri fjallar um aðlögun og þróun umhverfis okkar í samtali við Ágústu Kristófersdóttur forstöðumanns Hafnarborgar.
Laugardag 3. apríl kl. 13-15
Spurt og svarað
-Fulltrúi skipulags svarar spurningum gesta um verkefnin á sýningunni.

Auglýst síðar:
Stefna í Hafnarmálum
-Gísli Gíslason formaður Hafnarsambandsins, Már Sveinbjörnsson hafnarstjóri Hafnarfjarðarhafnar og fleiri ræða framtíð hafnarsvæða á suðvesturhorni landsins.

Hreyfiprentstofan mun mæta og prenta sérhönnuð veggspjöld í tengslum við vinnustofuna.