Rafmagnsskonnortan Opal

Rafmagnsskonnortan Opal kemur til hafnar í Reykjavík í dag kl. 17
Í dag, þriðjudaginn 27. september kl. 17, kemur skonnorta Norðursiglingar, Opal, til hafnar í Reykjavík eftir siglingu frá Grænlandi en skipið hefur verið þar síðustu 6 vikur að sigla með farþega í ævintýraferðum um Scoresbysund.
Opal mun svo vera áfram í Reykjavík í næstu viku í tengslum við ráðstefnuna Making Marine Applications Greener 2016, hvar gestum verður boðið að sigla á þessu einstaka, rafknúna og umhverfisvæna skipi.

Norðursigling
Hafnarstétt 9-11 | Húsavík
Sími 464 7272