Samtímalist fyrir byrjendur, frá sýningunni Í hlutarins eðli
Frá sýningunni Í hlutarins eðli – skissa að íslenskri samtímalistasögu [1.0] í Hafnarhúsi.

Leiðsögn: Án titils – samtímalist fyrir byrjendur

Fimmtudag 5. apríl kl. 20.00 í Hafnarhúsi

Listasafn Reykjavíkur býður upp á létta leiðsögn um valdar sýningar í Hafnarhúsinu fyrir gesti sem vilja forvitnast um hvað er í gangi í samtímalist. Markhópurinn eru fróðleiksfúsir byrjendur á öllum aldri.

Sagt verður stuttlega frá sögu Listasafns Reykjavíkur og hlutverki þess, sérstöðu Hafnarhúss sem miðstöðvar samtímamyndlistar og einstakri hönnun hússins.

Loks skoðum við saman nokkur verk á sýningum og veltum því fyrir okkur hvað listamennirnir eru að pæla.

Boðið er upp á kvöldkaffi, afslappað spjall og rölt um sýningarsali með sérfræðingi á vegum safnsins.

Tilvalið sem hluti af kvöldstund með hópi vina eða samstarfsfélaga.

Allt sem þú vildir vita um samtímalist en þorðir ekki að spyrja!

Miði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.

RELATED LOCAL SERVICES