Listin talar tungum á Kjarvalsstöðum
Sunnudag 11. febrúar kl. 13.00 á Kjarvalsstöðum
Einstakt tækifæri fyrir rússneskumælandi gesti að fá innsýn í myndlist Jóhannesar S. Kjarvals á sýningunni Líðandin – la durée.
Í vetur býður Listasafn Reykjavíkur upp á vikulega myndlistarleiðsögn á ýmsum tungumálum í samstarfi við Móðurmál – samtök um tvítyngi.
Næstu leiðsagnir verða á arabísku, serbnesku, spænsku, japönsku, tælensku og tékknesku/slóvakísku.
Listin talar tungum verður á sunnudögum kl. 13.00 á Kjarvalsstöðum og í eitt skipti í Ásmundarsafni.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.
Við minnum á kaffihúsið fyrir léttan hádegisverð!