Opnun sýningarinnar Barnasáttmálinn rokkar, já hann er okkar!

Verið velkomin á opnun sýningarinnar Barnasáttmálinn rokkar, já hann er okkar þriðjudaginn 17. apríl kl. 13.

Á Barnamenningarhátíð sýnir Þjóðminjasafn Íslands litríkar styttur eftir börn í 6. bekk í Ingunnarskóla. Hvert og eitt kynntu þau sér innihald Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og völdu sér ákveðin réttindi til að tjá með styttunni sinni. 

Markmiðið var að nemendurnir áttuðu sig á að öll börn eiga að njóta sömu réttinda, óháð því hver þau eru, hvar þau búa eða hvernig þau líta út. Ásdís Kalman, listgreinakennari við Ingunnarskóla, stýrði verkefninu.

Sýningin verður opnuð þriðjudaginn 17. apríl kl. 13:00. Við það tækifæri syngja nemendurnir frumsamið lag um Barnasáttmálann.

Sýningin er opin daglega frá 17.– 22. apríl frá kl. 10 – 17

 

 

RELATED LOCAL SERVICES