Skosk menningarhátíð á KEX 28.-30. janúar
Burns nótt haldin í fimmta sinn á Kex Hostel
Kex Hostel mun halda sína árlegu skosku menningarhátíð í fimmta sinn helgina 28. til 30. janúar næstkomandi í samstarfi við Edinborgarfélagið á Íslandi, Icelandair, Grants og Mekka. Burns nótt er haldin ár hvert í Skotlandi þann 25. janúar, á afmælisdegi þjóðskálds Skota Robert Burns, og er henni fagnað með skoskum mat, drykk og tónlist og að sjálfsögðu ljóðlist Robert Burns.
Kex Hostel hefur boðið Russell Mechlan, skoskum sekkjapípu¬leikara til landsins sem mun sjá til þess að Burns nótt fari fram í samræmi við hefðir og reglur. Einnig mun gelíska þjóðlagasveitin Dàimh (borið fram „Dæf“), sem rekur rætur sínar til skosku hálandanna, koma tvisvar sinnum fram á hátíðinni.
Sæmundur í sparifötunum, veitingastaður Kex Hostels býður upp á sérstakan Burns matseðil í kringum hátíðina og samanstendur hann af góðum og sannreyndum skoskum mat og drykk. Að sjálfsögðu verður boðið upp á hið heimsfræga haggis með stöppuðum kartöflum, rófum, næpum og viskísósu. Aðrir réttir sem eru á matseðli eru lambakássa af Hálöndunum, blaðlaukssúpa og svo auðvitað ógrynni af viskíi, en það þykir ómissandi á Burns nótt.
Listrænn stjórnandi Burns Night í ár er enginn annar en blaðamaðurinn og tónlistarfræðingurinn Arnar Eggert Thoroddsen. Í fyrra flutti hann ásamt fjölskyldu til Íslands aftur eftir þriggja ára búsetu í Edinborg þar sem hann nam tónlistarsfræði. Hann tekur við keflinu af Benedikt Hermanni Hermannssyni.
Tenglar:
www.facebook.com/kexhostel
www.facebook.com/travelandgoodtimes
www.kexhostel.is
www.kexland.is
www.daimh.net/the-band
www.robertburns.org
www.arnareggert.is