Það á að gefa börnum brauð Laufabrauðsgerð í Viðey

Það á að gefa börnum brauð │Laufabrauðsgerð í Viðey


Það á að gefa börnum brauð er yfirskrift fjölskylduviðburðar á vegum Borgarsögusafns sem fram fer í Viðey sunnudaginn 25. nóvember kl. 13:30. En þá mun Margrét Sigfúsdóttir, skólastýra Hússtjórnarskólans í Reykjavík, kenna gestum réttu handtökin við laufabrauðsgerð.


Að hnoða hveitideig og fletja út í þunnar kökur sem síðan eru skornar út og steiktar er einn af elstu og sérstæðustu jólasiðum þjóðarinnar, en í elstu heimildum frá 18. öld er fjallað um laufabrauðið sem sælgæti Íslendinga. Metnaðurinn við gerð þess fyrr á tímum var jafnvel svo mikill að þeir sem skáru fram úr í listfengi voru lánaðir á milli bæja.


Gestir eru hvattir til að fjölmenna út í Viðey og taka með sér laufabrauðsjárn og hnífa til útskurðar en einhver áhöld verða einnig á staðnum. Í Viðeyjarstofu verður hægt að kaupa gómsætar veitingar við allra hæfi.
Tíu laufabrauð í öskju kosta 2.000 krónur.
Nauðsynlegt er að skrá sig á [email protected].
Ferjan siglir til Viðeyjar frá Skarfabakka klukkan 13:15, 14:15, 15:15.

Ferjukostnaður:
Fullorðnir 16 ára og eldri: 1.550 kr.
Börn 7-15 ára 775 kr.
Eldri borgarar og öryrkjar 1.400 kr.