Þorvaldur Skúlason, brautryðjandi íslenzkrar samtímalistar

Þorvaldur Skúlason, brautryðjandi íslenzkrar samtímalistar. Eftir Björn Th. Björnsson

Af bókarkápu:

Þorvaldur Skúlason er óumdeilanlegur brautryðjandi íslenzkrar samtímalistar og einn mesti málari sem við nú eigum. Enginn íslenzkur málari tengir viðlíka samaan sögu myndlistar okkthorvadlur_bjornar á þessari öld, sjálfur nemandi hinna elztu, Þórarins, Ásgríms og Jóns Stefánssonar, en meistari þeirra sem nú eru í blóma starfs. Því stóra hlutverki hfeur hann aðeins getað gegnt vegna þess, að Þorvaldur hefur sjálfur gengið alla þá leið og plægt fyrir sér, svo hver nýr morgunn í list hans efur haft annan blæ en dagurinn í gær. Því stendur hann nú, nær áttræður maður, enn í broddi þeirra sem hæst hefja hina hreinu myndlist í landi okkar.

Í bók þessari rekur Björn Th. Björnsson á sinn ljósa og læsilega hátt ævi hans og listasögu, frá uppvexti og æskumótun, um námsár og síðan öll hin merkilegu stig nýmótunar, sem gjörbreyttu myndlist okkar á síðastliðinni hálfri öld. sú saga hans er ekki síður rakin í teikningum, ljósmyndum og 85 stórum litprentunum frá öllum ferli hans.

Þorvaldur Skúlason, brautryðjandi íslenzkrar samtímalistar
Útgefandi – Þjóðsaga.Útgáfuár – 1983

04_thorvaldurs

Þorvaldur Skúlason (30. apríl 1906 – 30. ágúst 1984) var íslenskur listmálari sem var einn af frumkvöðlum abstraktlistar á Íslandi og undir áhrifum frá franska kúbismanum sem hann kynntist í Frakklandi á 4. áratugnum. Stærsta safn verka hans er í eigu Listasafns Háskóla Íslands sem stofnað var 1980 með listaverkagjöf hjónanna Sverris Sigurðssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur, en verk eftir Þorvald voru uppistaða í safni þeirra (117 af 140 verkum).thorvaldur

Þorvaldur fæddist á Borðeyri við Hrútafjörð á Ströndum, sonur faktorsins í Riisversluninni, Skúla Jónssonar, og Elínar Theodórsdóttur. Þegar hann var þriggja ára fluttist fjölskyldan til Blönduóss þar sem hann ólst upp. Fjórtán ára varð hann messadrengur á farþegaskipinu MS Gullfossi, en ári síðar fótbrotnaði hann og stytti sér stundir með teikningum. Haustið 1921 fór hann til Reykjavíkur og fékk tilsögn hjá Ásgrími Jónssyni.

thorvaldur_malverk
Hlutir á bláum skáp Ár: 1943

1927 sýndi hann verk sín á 7. almennu listasýningu Listvinafélags Reykjavíkur og 16. febrúar 1928 hélt hann sína fyrstu einkasýningu. Þetta sama ár fór hann í nám við listaháskólann í Osló. 1931 flutti hann til Parísar og til Kaupmannahafnar 1933 og enn til Frakklands 1934. 1940 fluttist hann með fjölskyldu sinni til Íslands vegna innrásar Þjóðverja.

Eftir komuna til Íslands bjó hann mestmegnis í Reykjavík og tók virkan þátt í sýningum Félags íslenskra myndlistarmanna og sýningum Septem-hópsins meðal annars.

Hlutir á bláum skáp Ár: 1943

Related Posts