Tónlist frumsamin af Úlfi Eldjárn

Samnorrænn dansgjörningur á KEX Hostel 11. Desember

ulfur-eldjarn

Tónlist frumsamin af Úlfi Eldjárn

Ást, vinna og leikur eiga stóran hluta af daglegu lífi og okkar og eru þessi þrjú atriði þemað í nýjum dansgjörning sem verður prufukeyrður næsta sunnudagskvöld í Gym & Tonic. „Parts of Life“ er heiti á samnorrænum dansgjörning sem verður frumsýndur í Finnlandi í janúar á næsta ári.   Gjörningurinn er saminn af íslenskum, finnskum  og sænskum höfundum og gefst Íslendingum tækifæri á að verða vitni af prufukeyrslu á sunnudaginn.kex

Hvort land fyrir sig vinnur með eitt þema og er þema Íslands tengsl í þessu verki.  Tónlistina fyrir gjörninginn semur sjálfur Úlfur Eldjárn sem við þekkjum fyrir verk sín í kvikmyndum, leikhúsum og sömuleiðis sem meðlim hljómsveita á borð við Apparat Organ Quartet og Kanada.

Nánari upplýsingar má finna um verkið hér:

https://www.kexland.is/kex-event-calendar/parts-of-life