Ókeypis hádegistónleikar: Tríó Reykjavíkur
Föstudag 25. nóvember kl. 12.15 á Kjarvalsstöðum
Selló og sumar í skammdeginu
Listasafn Reykjavíkur og Tríó Reykjavíkur hófu í haust níunda starfsár hádegistónleika á Kjarvalsstöðum. Miðað er við að fólk geti brotið upp daginn og tekið sér hlé frá vinnu með fagurri tónlist í hlýlegu umhverfi.Efnisskrá:
Dmitri Shostakovich: Sónata fyrir selló og píanó í d moll, op. 40
Antonio Vivaldi: „Sumarið“ úr „Árstíðunum“, konsert nr. 2 í g moll, op. 8
Flytjendur:
Guðný Guðmundsdóttir, fiðla, ásamt nemendum
Gunnar Kvaran, selló
Richard Simm, píanó