Vinningshafi ljósmyndarýni Ljósmyndasafns Reykjavíkur

 

Vinningshafi ljósmyndarýni Ljósmyndasafns Reykjavíkur

Myndin hér fyrir neðan er af Þorsteini í einum af sínum jöklaferðum.

Það er með mikilli ánægju sem við tilkynnum að mastersneminn Þorsteinn Cameron var hlutskarpastur þátttakenda í ljósmyndarýni 2018 sem Ljósmyndasafn Reykjavíkur stóð fyrir 19.-20. janúar s.l. og var hluti af dagskrá Ljósmyndahátíðar Íslands 2018. Í verðlaun hlaut Þorsteinn styrk úr Minningarsjóði Magnúsar Ólafssonar ljósmyndara (1862-1937) að upphæð 500.000 kr.

Alls tóku 36 manns þátt í ljósmyndarýninni 28 innlendir og 8 erlendir. Rýnendur voru alls 13 talsins, 6 erlendir og 7 íslenskir.

Markmiðið með ljósmyndarýninni er að útvíkka tengslanet milli ljósmyndara í öllum greinum og gefa þeim tækifæri til að fá ráðleggingar og endurgjöf um verk sín. Ljósmyndarýni er 20 mínútna fundur þar sem ljósmyndari mætir með myndir sínar, á pappír eða á stafrænu formi og sýnir viðkomandi rýnanda. Auk íslenskra sérfræðinga á sviði ljósmyndunar veittu virtir erlendir rýnendur, sem ýmist eru sýningastjórar á söfnum og galleríum eða ritstjórar ljósmyndatímarita, íslenskum ljósmyndurum umsögn um verk þeirra. Þátttakan getur fært ljósmyndurum ýmis tækifæri eins og boð á erlendar hátíðir og/eða sýningaþátttöku jafnt innanlands sem utan.

Þorsteinn Cameron

Þorsteinn Cameron útskrifaðist með BA í ljósmyndun við London College of Communicatons árið 2014. Síðan þá hefur hann unnið sem fjalla- og jöklaleiðsögumaður hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum. Í febrúar n.k. mun hann hefja MA nám í ljósmyndun við Photography Studies College í Melbourne, Ástralíu.

Undanfarið ár hefur Þorsteinn unnið að verkefninu sem færði honum flestu atkvæðin á ljósmyndarýni Ljósmyndahátíðar Íslands 2018. „Mig langaði til að gera eitthvað um jöklana og náttúruna sem ég hef starfað við undanfarin ár en ég vildi helst forðast að taka myndir af jöklum. Ég slóst í för með Jöklarannsóknarfélagi Íslands og fór í tvo leiðangra með þeim á Langjökul og Vatnajökul. Úr þeim ferðum hefur sprottið einskonar heimildarverkefni um starf þessara einstaklinga og þrá þeirra til að skilja betur þessi fyrirbæri sem eru á hverfandi hveli“. Í júní n.k mun Þorsteinn sýna afrakstur síðasta árs í gallerí Ramskram og gefa út litla bók.
FYRRI STYRKÞEGAR Á LJÓSMYNDARÝNI
2016 – Agnieszka Sosnowska
2014 – Bára Kristinsdóttir og Valdimar Thorlacius