VITI HÖFÐI – LIGHT HOUSE

VITI HÖFÐI – LIGHT HOUSE

HÖNNUN OG SKIPULAG SVÆÐIS VIÐ SÆBRAUT

Um verkefnið: Hönnun og skipulag svæðis við Sæbraut rétt utan við Höfða. Tillagan byggir á því að nýr viti verði reistur á þessu svæði og mun hann tryggja örugga merkingu siglingarleiðarinnar í Gömlu höfnina. Lóðin er aðgengileg almenningi og frágangur á vitanum mun nýtast sem útsýnispallur og áningarstaður á göngu- og hjólaleið meðfram Sæbraut.

Tímabil: 2016
Staða: Á hönnunarstigi
Staðsetning: Sæbraut við Höfða, Reykjavík
Stærð: 38 m2
Verkkaupi: Reykjavíkurborg, Faxaflóahafnir sf
Þrívíddarvinnsla: Yrki arkitektar.

Yrki var stofnað árið 1997 af þeim Ásdísi Helgu Ágústsdóttur og Sólveigu Berg. Stofan var stofnuð í framhaldi af 1. verðlaunum sem þær hlutu fyrir Lækningaminjasafnið við Nesstofu á Seltjarnarnesi. Í dag starfar hjá Yrki samstilltur hópur hæfileikaríkra hönnuða í arkitektúr, skipulagi og landslagsarkitektúr. Yrki arkitektar leggja ríka áherslu á að mæta kröfum viðskiptavina sinna á faglegan- og hagkvæman hátt.

Yrki býður upp á alhliða þjónustu á sviði arkitektúrs og skipulags.

Hönnun nýbygginga
Endurhönnun eldri bygginga
Innanhússhönnun
Hönnun innréttinga og húsgagna
Deiliskipulagsgerð
Rammaskipulagsgerð
Aðalskipulagsgerð
Landslagshönnun

Þjónusta Yrkis nær einnig til verksamningagerðar, eftirlits, hönnunar- og verkefnastjórnunar. Yrki arkitektar hafa starfað í hartnær 20 ár og hafa hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga. Okkar ríka reynsla af arkitektúr og hönnun skilar sér í heilsteyptri nálgun á öll okkar verkefni þar sem umhverfi, samhengi og mælikvarði mótar verkin.
Nafnið Yrki hefur sérstaka merkingu í íslensku, – að rækta og yrkja. Nafnið vísar til sýn stofunnar um að sameina það jarðbundna og ljóðræna, að samtvinna ólíka þætti í öllum verkefnum, frá þéttbýli til náttúru.
Yrki er fyrsta arkitektastofan á Íslandi sem fær vottun á gæðakerfi samkvæmt ISO-9001 staðlinum. Með ISO-9001 gæðastaðlinum erum við að tryggja há gæði í þjónustu okkar, skilvirk samskipti við viðskiptavini og öflugt gæðaeftirlit á allri hönnun og ráðgjafaþjónustu.

Starfsmenn
ÁSDÍS HELGA ÁGÚSTSDÓTTIR | ARKITEKT
SÓLVEIG BERG | ARKITEKT
SIGURÐUR KOLBEINSSON | ARKITEKT
YNGVI KARL SIGURJÓNSSON | ARKITEKT
MAGNÚS MÁR ÞORVARÐARSON | ARKITEKT
ELÍN MJÖLL LÁRUSDÓTTIR | ARKITEKT
DANIEL AXELSEN | BYGGINGAFRÆÐINGUR
SIGURBORG ÓSK HARALDSDÓTTIR | LANDSLAGSARKITEKT
MELANIE LORENZ | ARKITEKT
KASPER BRÜNINGS | BYGGINGAFRÆÐINGUR
EDDA ÞÓRSDÓTTIR | ARKITEKT
INGIBJÖRG BENEDIKTSDÓTTIR | BYGGINGAFRÆÐINGUR
LILJA KRISTÍN ÓLAFSDÓTTIR | LANDSLAGSARKITEKT
SÓLVEIG GUNNARSDÓTTIR | ARKITEKT (NEMI)