Í júlí sækja flestir ferðamenn Ísland heim. Í júlí eru Íslendingar líka mest á ferðinni; enda mildasti mánuðurinn. Margir fara bara í sumarbústað, njóta þess sem nærumhverfið hefur uppá á bjóða. Það þurfa ekki allir að fara í Landmannalaugar eða hlaupa upp á Herðubreið. Höfuðborgin býður líka upp á sérstakan sjarma á þessum árstíma; flestir í burtu, lítil umferð, og gott veður í þeim fjölmörgu útivistarsvæðum sem eru í höfuðborginni og nærliggjandi sveitarfélögum. Icelandic Times / Land & Saga sýnir hér syrpu af myndum, sem sýnir júlí eins og hann er. Hlýr.







Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Ísland 13/07/2025 – A7C R, RX1R II : FE 2.8/100mm GM, 2.0/35mm Z


