Vatn er auðlind. Ísland er ansi vel í sveit sett, með vatnsbúskap. Á mann, hefur Ísland lang mest af fersku vatni í öllum heiminum, eða 498.000 rúmmetra af hreinu vatni á mann. Næst kemur Guyana með 344.500, í þriðja sæti er Surinam með 169.000 rúmmetra á mann. Í áttunda sæti er Kanada með 73.500 rúmmetra, sæti ofar en Noregur með 72.500 rúmmetra af endurnýjanlegu hreinu vatni á haus. Af tæplega 200 þjóðum veraldar, er Kuwait verst sett, en þar eru til, 4 rúmlítrar af vatni á mann á ári, meðan Afganistan er næst neðst með 15 rúmlítra. Til samanburðar notar hver íbúi Reykjavíkur um 155 rúmlítra á ári, eða 155.000 lítra af köldu vatni.
Vatn er ekki bara auðlind, sem við notum, bæði sem drykkjarvatn, og til húshitunar. Vötnin, árnar, eru stór hluti af náttúrunni, ekki bara sem mótandi afl, heldur er óbeisluð fegurð, sem færir okkur ferðamenn, og fær okkur heimamenn til að ferðast um landið, okkar.
Á síðustu árum, hefur verið fest í lög, nokkuð strangar reglugerðir um verndun vatns. Því auðvitað eigum og þurfum við að ganga vel um þessa auðlind, fyrir komandi kynslóðir. Hér koma nokkrar myndir af vatni. Myndir af vatni sem gleður augað, og sem gefur okkur bæði orku, fegurð og auðvitað… neysluvatn.






Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Ísland : 07/03/2026 : A7R IV, A7C R, RX1R II – FE 2.8/100mm GM, FE 1.2/50mm GM, 2.0/35mm Z


