Geómetría heitir nýlega opnuð sýning á Gerðarsafni í Kópavogi. Falleg, spennandi og vel uppsett sýning þar sem 22 listamenn sem störfuðu upp úr miðri síðustu öld í tilraunamennsku og framsæknum hugmyndum um eðli og möguleika listarinnar. Geómetrían var ekki einangruð myndlistarstefna, heldur nýtt viðmót og tjáning á samtímanum. Á sýningunni sést vel hvernig myndlistin flæðir út fyrir ramman, og höggmyndir, vefnaður og myndverk verða að samstæðri og óvenjulegri sýningu. Sýningastjórar eru Brynja Sveinsdóttir og Cecilie Gaihede, sýningarhönnun var í höndum Hreins Bernharðssonar og Arnars Freys Guðmundssonar. Ráðgjafi var Ólafur Kvaran. Sýningin stendur fram í janúar á næsta ári.
![](https://i0.wp.com/icelandictimes.com/cdn-cgi/image/width=1063,height=709,/wp-content/uploads/2022/10/Gerdarsafn_S7C3873-1.jpg?resize=1063%2C709&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/icelandictimes.com/cdn-cgi/image/width=1063,height=709,/wp-content/uploads/2022/10/Gerdarsafn_DSC4621.jpg?resize=1063%2C709&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/icelandictimes.com/cdn-cgi/image/width=1063,height=709,/wp-content/uploads/2022/10/Gerdarsafn_S7C3879.jpg?resize=1063%2C709&ssl=1)
Kópavogur 19/10/2022 : RX1R II, A7C – FE 1.8/14mm GM, 2.0/35mm Z
Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson