Páll Stefánsson ljósmyndari fór í bæinn til að fanga þjóðhátíðarstemninguna
Íslendingar halda upp á stofnun íslenska lýðveldisins á afmælisdegi Jóns Sigurðssonar (1811-1879) frelsishetju Íslendinga. Það var glatt yfir fólki í miðbæ Reykjavíkur nú í ár, samtökutakmarkanir vegna Covid-19 voru rýmkaðar þremur dögum fyrir daginn stóra. Nú máttu 300 manns koma saman. Þrátt fyrir að lofthitinn væri bara rúmar 10°C / 50°F, hékk hann þurr, sem gerði auðvitað þennan stóra dag enn betri. Dagskráin var lágstemmd, lúðrasveitir og sirkusfólk færði sig til og frá í miðborginni, til þess að mannfjöldinn myndi dreifa sér vel um höfuðborgina.

Skátar ganga eftir Suðurgötu frá Austurvelli að leiði Jóns Sigurðssonar í Hólavallakirkjugarði. 
Alexandra Briem Forseti borgarstjórnar Reykjavíkur, heldur ræðu við leiði Jóns Sigurðssonar Forseta. 
Forseti Íslands Guðni Th Jóhannesson og forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir ganga frá Alþingishúsinu á Austurvöll á hátíðardaskrá í tilefni dagsins. 
Sirkus í Hljómskálagarðinum. 
Margir klæða sig upp í tilefni dagsins, hér mæðgur við Reykjavíkurtjörn. 
Lúðrasveitin Svanur spilar fyrir gesti og gangandi á Lækjartorgi 
Jazz á Skólavörðustíg, Hallgrímskirkja í bakgrunni. 
Götulistamenn skemmta gestum og gangandi á gatnamótum Laugavegs og Skólavörðustígs. 
Einn spenntur að hlusta á Lúðrasveit Reykjavíkur spila þjóðlög á Austurvelli 
Fólk klæðir sig upp í tilefni dagsins, hér á Austurvelli. 
Leikkonan Hanna María Karlsdóttir var Fjallkonan þetta árið á hátíðardagskrá þjóðhátíðardagsins á Austurvelli.


