17. júní anno 2025

Lýðveldið var stofnað á þessum degi, afmælisdegi Jóns Sigurðssonar (1811-1879) Forseta, fyrir áttatíu og einu ári, árið 1944. Veðrið var eins og alltaf, rigning, en bæði hlýrra og minni úrkoma en þegar þjóðin kom saman á Þingvöllum að fagna sjálfstæðinu fyrir margt löngu. Í dag er þetta bæði hátíðarstund, og hátíð barna. Í fyrsta skipti frá lýðveldisstofnun, hélt forseti tal á Austurvelli, en það hefur verið hefð að Forsætisráðherra ávarpi þjóðina á þessum degi. Kristrún Frostadóttir Forsætisráðherra bauð Höllu Tómasdóttur Forseta að flytja tölu til þjóðarinnar. Eftir að blómsveigur var lagður á leiði Jóns Sigurðssonar í Hólavallakirkjugarði, um hádegisbil, tók við hátíð barna, þar sem foreldrar leiddu börnin með landvættunum á opnin svæði þar sem boðið var upp á leiktæki og skemmtiatriði fyrir yngri borganna í blessaðri rigningunni. Auðvitað fór Icelandic Times / Land & Saga í bæinn, hér kemur myndasyrpa frá 17. júní, 2025.

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir heldur hátíðarræðu á Austurvelli
Katrín Halldóra Sigurðardóttir var Fjallkonan í ár, og hélt ræðu eftir Forseta Íslands
Bifreið Forseta Íslands, en þessi bifreið var líka bifreið Forseta Íslands, við lýðveldisstofnun
Það er kominn 17. júní
Skrúðganga á Skólavörðustíg
Keyrt niður Skólavörðustíg
Skrúðganga í Bankastræti
Landvættir á Fríkirkjuvegi
Risi á gangi við Reykjavíkurtjörn
Spilað fyrir lýðinn við Tjörnina
Hoppukastali í Hljómskálagarðinum
Skrúðganga að leiði Jóns Sigurðssonar í Hólavallakirkjugarði
Sanna Magdalena Mörtudóttur, Forseti borgarstjórnar Reykjavíkur leggur blómsveig á leiði Jóns Sigurðssonar Forseta

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson

17/06/2025 – RX1R II, A7C R – 2.0/35mm Z, FE 1.8/135mm GM, FE 1.4/24mm GM