Gallery Port boðar gleði í sumar.

Hin fjórtán fræknu

Í Gallery Port í Laugarnesinu stendur nú yfir sýningin Sumargleðin, þar sem fjórtán fjörkálfar, eins og galleríið kynnir listamennina, eru með samsýningu. Ólíkir listamenn, sem búa samt sem áður til ansi heildstæða sýningu. Listamennirnir eru Árni Már Þ. Viðarsson, auðvitað Auður Ómarsdóttir, Baldvin Einarsson, Dýrfinna Beníta, Geoffrey Þ. Huntingdon, Georg Óskar, Helena Margrét Jónsdóttir, Joe Keys, Salka Rósinkranz með essi, Skarphéðinn Bergþóruson, Steingrímur Gauti, Ýmir Grönvold og Þórður Hans Baldursson. Allt listamenn sem eru að skapa skemmtileg, jafnvel sumarleg verk.

Sýningin „Sumargleðin“ í Gallery Port
Sýningin „Sumargleðin“ í Gallery Port
Sýningin „Sumargleðin“ í Gallery Port
Sýningin „Sumargleðin“ í Gallery Port
Sýningin „Sumargleðin“ í Gallery Port
Sýningin „Sumargleðin“ í Gallery Port

Reykjavík 30/06/2024 : A7C R – FE 1.8/20mm G
Ljósmyndir & texti: Páll Stefánsson

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0