– ekki andstæður heldur samverkandi eining
Reykjavík mótaðist, líkt og íslensk menning og búseta, í nánu samspili við höfuðskepnurnar jörð, vatn, loft og eld. Fáar nútímaborgir njóta þessa nána samspils við náttúruna en það er einmitt þetta atriði sem ljær Reykjavík hve mest af fegurð sinni og dýpt.
Hefðbundin vestræn menning hefur, andstætt þessu, tilhneigingu til að líta á tvenndarpör, eins og til dæmis borg og náttúru, sem andstæður, sem ekki séu líklegar til að geta haft ávinning af því að komið sé á tengslum á milli þeirra.
Í þessari bók er það útskýrt að tvenndarpör, eins og til dæmis borg og náttúra og hús og garður, eru pör sem geta styrkt hvort annað, á hliðstæðan hátt og rautt og grænt í litafræðinni. Með að tefla þeim saman verður til samverkandi heild sem getur lyft skipulagi og arkitektúr borga á hærra stig.
,,Ég fagna þessari bók, sem er rituð af mikilli skarpskyggni. Hún sýnir fram á hugarfarsbreytingu, í átt til heildrænnar heimssýnar … “ – Michael Laurie, prófessor við Berkeley-háskóla í Kaliforníu.