Nýverið gaf Guðjón út lagið Everyday/Í Allan Dag. Í framhaldi af því gefur hann út íslenskt jólalag á næstu vikum sem var tekið upp í Studio 1 í Abbey Road!
Guðjón Böðvarsson hefur búið að mestu erlendis allt sitt líf. Hann flutti til Bandaríkjanna sem lítill drengur og bjó þar í fjögur ár, í Rússlandi í tvö ár og bjó svo á Íslandi í skamman tíma áður en hann flutti til London og hefur búið að þar síðan. Guðjón fékk tónlistarstyrk í menntaskólanum Wellingon College í Bretlandi og tók þátt í fullt af tónlistarviðburðum.
Hann stofnaði bandið GUD JON með vinum sínum í Wellington College – Henry og Dicky og hafa þeir verið að semja og spila saman sl. ár.Guðjón gaf sína fyrstu plötu út í fyrra sem heitir Holmgang og hélt í framhaldi sína fyrstu tónleika í London í fyrra í troðfyllri kirkju í Stoke Newington Old church sem heppnuðust mjög vel og eftir það spilaði hann á Íslandi fyrir fullu húsi í Iðnó. Honum hefur verið líkt við James Blake af krítik í London
Guðjón hefur alltaf verið í kór. Fyrst í Neskirkjukórnum sem hann byrjaði þegar hann var 7 ára gamall. Guðjón hefur einnig verið í London Contemporary Voices kórnum í London þar sem hann hefur oft verið með einsöng.
Líkt og gefur að skilja fær Guðjón mikinn innblástur úr kórtónlist enda hefur hann verið mikið í kór og hlustað mikið á aðra kóra. Aðrir innblástrar koma frá Bon Iver, James Blake og Ólaf Arnalds.
Guðjón fékk svo diplomu í söng í Complete Vocal Institution í Danmörku. Það er margt á döfinni hjá Guðjóni og mun hann gefa út fullt af nýju efni á næsta ári.
Guðjón segist hrifinn af tilraunakenndu efni í tónlist og vinnur sjálfur mikið með ný og óvanaleg hljóð.
Tilvitnanir úr fjölmiðlum, sjá hér fyrir neðan.
„Ég veit eiginlega ekki hvernig ég á að lýsa tónlistinni. Lögin eru allskonar en það eru kannski nokkur elements í þessu. Mér finnst mjög gaman að uppgötva og kanna öðruvísi hljóð og hafa smá fjölbreytni. Við notum mikið af hljóðfærum og það er smá elektrónískur fýlingur í nokkrum lögum. Ég er líka mjög hrifinn af mikið af bakröddum, sem er samansafn af minni rödd og virkar vel live með öðrum.“
Sjá hér grein í Fréttablaðsins 2019.
„…Gudjon looks very comfortable, his vocal delivery both heartfelt and humble…“
Sjá hér tónlistargagnrýni frá MusicNews.com
„A stripped back cover song with just vocals and cello is maybe the most perfect moment of the night. But it’s their own song ‘Water’ that gets the biggest reception with the full band re-joining the stage. The song has a huge chorus, heads start to nod in the room, it features a beautiful ending with just vocal harmonies.“
Sjá hér tónlistargagnrýni frá SubbaCultcha
Hlustið hér á tónlist Guðjóns á Spotify
Sjá videó hér