Handverksdagur Heimilisiðnarfélags Íslands á sunnudag
Sunnudaginn 12. júní verður hinn árlegi Handverksdagur Heimilisiðnaðarfélags Íslands á Árbæjarsafni.
Dagurinn hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár, enda margt áhugavert og fallegt sem ber þar fyrir
sjónir. Venju samkvæmt munu félagsmenn sýna margvíslegt handverk, eins og útsaum, baldýringu, knipl,
perlusaum, tóvinnu, spjaldvefnað, rússneskt hekl og sauðskinnsskógerð. Einnig verður hægt að fylgjast með
ullarlitun eftir gömlum aðferðum með íslenskum jurtalitum.
Á baðstofulofti Árbæjar mun vinnukonan þeyta rokkinn og teygja lopann á meðan vinnumaðurinn spinnur úr
hrosshári og fléttar í reipi og bregður í gjarðir. Þá verður eldsmiður að störfum í smiðjunni. Á torginu er líka
líf og fjör. Í safnhúsinu Lækjargötu 4 kennir margra grasa á sýningunni Neyzlan – Reykjavík á 20. öld. Fyrir
yngstu kynslóðina er tilvalið að heimsækja sýninguna Komdu að leika en þar er mikill fjöldi leikfanga frá
ýmsum tímum sem krökkunum er frjálst að leika sér með. Auk þess er fjölbreytt úrval af útileikföngum til
staðar sem krökkum býðst að nota að vild, svo sem húllahringir, snú-snú, kubb og stultur. Á gamaldags
róluvelli verður hægt að leika í rólunum, vegasaltinu eða í sandkassanum.
Að vanda verður heitt á könnunni í Dillonshúsi.
Frítt inn fyrir börn yngri en 18 ára.
Árbæjarsafn er opið daglega í sumar frá kl. 10:00 – 17:00.
Sjá viðburðadagskrá á www.borgarsogusafn.is
