Eru einhver landamæri hvar norðrið byrjar? Á sýningunni Er þetta norður? í Norræna húsinu eru verk átta listamanna frá norðurslóðum, þeirra Gunnars Jónssonar, Anders Sunna, Máret Ánne Sara, Inuuteq Storch, Nicholas Galanin, Dunya Zakha, Marja Helander og Maureen Gruben. Listamennirnir búa allir í hánorðri, í landi Samanna í Finnlandi, Noregi og Svíþjóð, á Grænlandi, í Síberíu, Alaska og nyrst í Kanada. Er eitthvað sem bindur þau saman? Hefur áhrif búsetu áhrif á listsköpun þeirra? Þú getur komist að því með því að heimsækja sýninguna Er þetta norður?, sem er sýningastýrð af Daríu Sól Andrews og Hlyn Hallssyni. Sýningin var fyrst sýnd norður á Akureyri í Listasafni Akureyrar, sem hluti af Listahátíð í Reykjavík.
Reykjavík 31/01/2025 : A7C R – FE 1.4/24mm GM, FE 1.2/50mm GM
Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson