Sautján á Celsíus

Auðvitað, þegar vor / sumarveðrið heimsækir höfuðborgina, með 17°C stiga hita, svo snemm sumars, þá heimsækir Icelandic Times / Land & Saga auðvitað miðborgina. Á svona dögum er stemming; líf. Málarar að mála hús, músíkantar með músík utandyra. Ferðamenn undrandi yfir veðurblíðunni, heimamenn en meira undrandi. Svona eiga eiginlega allir dagar að vera. 

Börn að leik
Dyttað að húsi á Bergstaðastræti
Let it Be, eftir Paul og John sungið í Bankastræti
Á Austurvelli, bjór, hvítvín og eitthvað með
Í Austurstræti í veðurblíðunni
Sölubás á Lækjartorgi
Múgur og margmenni í Sundhöllinni, elstu sundlaug Reykjavíkur, vígð 1937

Reykjavík 13/05/2025 – A7C R : FE 2.8/100mm GM