Sund er mannbætandi

Við elskum sund. Á stór höfuðborgarsvæðinu búa tæplega 300 þúsund íbúar. Á síðasta ári voru heimsóknir í sundlaugar höfuðborgarsvæðisins samkvæmt  Morgunblaðinu, 4.3 milljónir.  Vinsælasta, mest sótta sundlaug á höfuðborgarsvæðinu er Kópavogslaug, en þangað komu á síðasta ári rúmlega hálf milljón gesta. Í öðru sæti er Lágafellslaug í Mosfellsbæ með tæplega 450 þúsund gesti, báðar laugarnar eru mjög barnvænar. Í þriðja sæti, er stærsta laug landsins, Laugardalslaug í Reykjavík, síðan keppa Seltjarnaneslaug, Vesturbæjarlaug og Sundhöllin, elsta og ein besta laug höfuðborgarsvæðisins um fjórða sætið. Salalaug í Kópavogi er frábær fyrir börn, Álftaneslaug og Dalslaug í Úlfarsárdal, en þessi nýja laug bætti við sig mest á síðasta ári, en heimsóknum þar fjölgaði um 24% frá síðasta ári. Seltyrnirningar fara oftast í sund, samkvæmt frétt Morgunblaðsins, eða 41 sinnum á ári, meðan Reykvíkingar fara að meðaltali bara 13 sinnum í sund á ári. Sem er frábært, því inn í þesari tölu eru auðvitað bæði smábörn og rígfullorðnir einstaklingar. 

Leikið sér í Laugardalslaug
Laugardalslaug, stærsta sundlaug landsins
Dalslaug er nýjasta viðbótin við sundlaugaflóru höfuðborgarsvæðisins
Kópavogslaug er mest sótta sundlaug landsins
Ungt og leikur sér í sundi
Sundhöllin er elsta sundlaugin á höfuðborgarsvæðinu, en sundlaugarnar eru um tuttugu
Flotið, slakað á í sundi

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson

16/06/2025 – RX1R II, 2.0/35mm Z