IceFish sjávarútvegssýningin er nú í Smáranum, Kópavogi og stendur frá 8. – 10. júní. Sýnendur og gestir frá öllum heiminum koma þarna saman og kynna það nýjasta og áhugaverðasta sem tengist sjávarútvegi. Sýningin var fyrst haldin árið 1984 og hefur verið haldin á þriggja ára fresti, þar til nú. En fimm ár eru síðan síðasta sýning var haldin, en henni hefur verið frestað í tvígang vegna Covid-19. Í setningarræðu sýningarinnar sagði Benedikt Árnason ráðuneytisstjóri sjávar- og landbúnaðarráðuneytisins að bjart væri framundan í íslenskum sjávarútvegi, og að verðmæti greinarinnar gæti tvöfaldast á næsta áratug. „Náin samvinna á sviði fiskveiða og fiskvinnslu hefur gert íslenskum fyrirtækjum kleift að þróa tæknina og þekkinguna sem þarf til að efla samkeppnishæfni greinarinnar. Þau starfa án afláts að því að auka verðmæti í greininni og bæta nýtinguna í bláa hagkerfinu.”
Kópavogur 08/06/2022 11:14 – 12:18 : A7R III : FE 1.4/24mm GM
Ljósmyndir og texti : Páll Stefánsson