Hengill Hengill er svipmikið móbergsfjall í grennd við Reykjavík. Jarðhiti er í Henglinum og ölkelda. Sunnan við Hengil eru þrjú dalverpi og í innsta dalnum, milli Hengils og Skarðsmýrarfjalls, er einn mesti gufuhver landsins.