Einn af okkar merkustu listamönnum er myndlistarmaðurinn Birgir Andrésson (1955-2007). Nú stendur yfir á Listasafni Reykjavík, Kjarvalsstöðum umfangsmikil yfirlitssýning, Eins langt og augað eygir, á verkum Birgis. Sýningarstjóri þessarar stóru og sterku sýningar er bandaríski listfræðingurinn Robert Hobbs og hönnuður sýningarinnar er Ásmundur Hrafn Sturluson. Sýningin veitir innsýn í áhrifamikinn feril Birgis, og tengir verk hans sterkt við erlenda og innlenda samtímalist. Á sýningunni eru yfir eitt hundrað verk listamannsins, úr safneign Listasafns Íslands, Listasafns Reykjavíkur, Metropolitan safnsins í New York borg, og líka frá erlendum og innlendum einkasöfnun. Sýningunni lýkur þann 15 maí.
Reykjavík 17/02/2022 – 11:39 -12:32 : A7C : 2.8/21 mm Z
Ljósmyndir og texti : Páll Stefánsson