Hrafnseyri, fæðingarstaður Jóns Sigurðssonar forseta (1811-1879) helsta leiðtoga í sjálfstæðisbaráttu íslendinga gegn konungsríkinu Danmörku

Fallegur fjörður

Arnarfjörður, er annar stærsti fjörður Vestfjarða eftir Ísafjarðardjúpi. Fjörðurinn er mjög fámennur, einstaklega fallegur, og með náttúruperlur og veðurfar sem er einstakt. Við þennan 30 km langa og tæplega 7 km breiða fjörð búa rétt innan við 500 íbúar. Í Arnarfirði er maður svo sannarlega kominn í annan heim, þó það séu rétt innan við 400 km frá Reykjavík til Bíldudals. Reyndar eru það 400 óvenju langir kílómetrar, því þegar maður er hálfnaður úr höfuðborginni versnar vegurinn, vegakerfið á sunnanverðum Vestfjörðum er nefnilega það versta á Íslandi. Langir vondir malarkaflar. Það eru þó bjartara framundan, því miklar vegabætur eru nú í gangi, svo eftir nokkur misseri, örfá ár, verður auðveldara heim að sækja Arnarfjörð, sem svo sannarlega er þess virði að heimsækja. Jafnvel strax í sumar, því veðrið þarna er einstaklega sumargott.

Horft út Arnarfjörð frá Hvestu, í átt að miðnætursólinni
Fossinn Dynjandi í Dynjandisvogi innst í Arnarfirði. Takið eftir ferðamanninum á bjargbrúninni að taka selfie (sjálfu)
Bíldudalur, eini þéttbýlisstaðurinn við fjörðinn

 

Listasafn Samúels Jónssonar (1884-1969) í Selárdal syðst og vestast í Arnarfirði.

Arnarfjörður : A7RIII – RX1R II, A7R IV : FE 1.4/24mm GM- 2.0/35mm Z – FE 2.8/90mm GM – FE 1.2/50mm GM – Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0