Á síðasta sólarhring hafa um 2500 jarðskjálftar mælst við Fagradalsfjall, þar sem gaus á síðasta ári. Sú breyting frá því í gær að skjálftarnir mælast nú á mun minna dýpi en í gær, en þeir eru nú á einungis á 2 til 3 km dýpi, sem þýðir að kvikan / hraunið hefur brotið sér leið mun nær yfirborðinu. Samkvæmt vef Veðurstofu Íslands, en það er jarðvá deild stofnunarinnar sem fylgist með jarðhræringum á Íslandi, að virknin þarna á Reykjanesinu komi í hviðum. Almannavarnir hafa lýst yfir óvissustigi vegna þessarar miklu jarðskjálftahrinu, og gulur flugveðurkvóti settur á, enda er bæði alþjóðaflugvöllurinn í Keflavík og innanlandsflugvöllurinn í Reykjavík ekki svo langt frá Fagradalsfjalli.
Reykjanes 31/07/2022 : A7R III RX1R II : FE 200-600 G, 2.0/35mm Z
Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson