Hannes Hafstein fyrir utan Stjórnarráðið, Harpa og Seðlabankinn í bakgrunni

Hannes fyrsti ráðherrann

Hannes Hafstein varð fyrsti ráðherra Íslands, árið 1904, þegar sérstakt ráðherraembætti í ríkisstjórn Danmerkur um málefni Íslands varð til. Stytta af Hannesi ásamt Kristjáni IX stendur fyrir framan við Stjórnarráðshúsið við Lækjartorg. Undir ráðherra Íslands voru þrjár skrifstofur, fyrsta annaðist dóms- og kirkjumál landsins. Önnur annaðist atvinnu- og samgöngumál, og sú þriðja annaðist fjármál landsins, og skatta til Konungsdæmisins. 

Hannes sem var fæddur árið 1861 á Möðruvöllum í Hörgárdal í Eyjafirði, sonur Péturs Amtmanns Havsteen, hann átti hvorki meira né minna en 10 börn með eiginkonu sinni, Ragnheiði Stefánsdóttur. Hannes Hafstein þótti ágætt skáld, Sprettur er ef til vill hans frægast ljóð, sem birtist í Verðanda árið 1882, og hefst svona ; 

Ég berst á fáki fráum
fram um veg.
Mót fjallahlíðum háum
hleypi ég.
Og golan kyssir kinn.
Og á harða, harða spretti
hendist áfram klárinn minn.

 

Hannes Hafstein fyrir utan Stjórnarráðið

 

Hannes Hafstein prýðir 500 króna seðil
Hannes Hafstein ráðherra Íslands

 

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

28/02/2023 : A7RIII : FE 1.4/85mm GM

 

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0