Patreksfjörður er nefndur eftir Patreki (d :963) biskup Suðureyja (e : Hebrides) en landnámsmaðurinn Örlygur Hrappsson sem nam Patreksfjörð og settist að í Örlygshöfn við sunnanverðan Patreksfjörð, nefndi fjörðin eftir biskupi. Patreksfjörður er syðstur Vestfjarða, og samnefnt þorp með um 700 íbúa er stærsti bær á sunnanverðum Vestfjörðum, og þriðji stærsti í fjórðungnum eftir Ísafirði og Bolungarvík. Byggðin í firðinum er hluti af Vesturbyggð, vestasta sveitarfélagi í Evrópu, en Bjarntangar vestasti hluti Látrabjargs er vestasti hluti Íslands. Byggð hefur verið við fjörðin frá Landnámi, og Vatneyri þar sem bærinn stendur, var einn af 25 verslunarstöðum Einokunarverslunarinnar á íslandi. Það var samt ekki fyrr en upp úr 1900 sem þéttbýli myndast við fjörðin, en þá eins og nú er það fyrst og fremst sjávarútvegur, og nú laxeldi sem skapar atvinnu. Það víða fallegt í Patreksfirði, og það tekur ekki nema tæpa sex tíma að skreppa frá Reykjavík og þangað vestur.
Ísland 04/03/2024 : RX1RII, A7R III, A7R IV: 2.0/35mm Z, FE 1.2/50mm GM, FE 2.8/100mm GM, FE 1.4/24mm GM, FE 2.8/90mm G
Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson