Það er ótrúlegt að koma inn í Ljósmyndasafn Reykjavíkur og já Samferðamaður yfirlitssýningu á verkum Gunnars V. Andréssonar ljósmyndara. Gunnar, fæddur árið 1950 er ansi snjall myndasmiður sem starfaði í meira en hálfa öld á fjórum dagblöðum, sem öll eru hætt. Hann byrjaði á Tímanum árið 1966, fór yfir á Vísi 1978, DV frá 1981, og lauk ferlinum á Fréttablaðinu, en þar starfaði hann frá 2003 til 2017, þegar hann settist í helgan stein. Á sýningunni eru rúmlega tvöhundruð ljósmyndir, sem sýna vel hvernig Ísland fór úr einangruðu samfélagi í alþjóðlegt. Sýningin er frábær spegill á þessar breytingar. Gunnar V. átti einstakt samband við sína samferðamenn, venjulegt fólk, og fyrirmenni, það sést. Þarna má forseta hoppa i parís, forsætisráðherra í samneyti við dragdrottningar, og Englandsdrottningu í fullum skrúða. Hann nær augnablikum af alþýðuhetjum, börnum, poppstjörnum og skvísum. Hann myndar líka erfiða viðburði eins og gosið í Heimaey, snjóflóðið á Flateyri og jákvæða eins og meri í látum í miðnæturbirtu norður í Skagafirði. Flott sýning hjá góðum ljósmyndara, sem hafði einstaklega næmt auga fyrir fréttnæmum augnablikum, sem hreyfðu við fólki í meira en hálfa öld. Sýningarstjóri er Jóhanna Guðrún Árnadóttir.







Reykjavík 07/05/2025 – A7C R, RX1R II : 2.0/35mm Z, FE 1.8/20mm G