Í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi, er nú sýningin Höfuðskepnur / Elements, í sýningarstjóri Markúsar Þórs Andréssonar. Þar takast sex listamenn á við hin fjögur frumefni; jörð, vatn, loft og eld. Þetta eru ný / nýleg verk eftir samtímalistamennina Þorbjörgu Jónsdóttur (1979) sem sýnir 16 mm kvikmyndaverk tekin af sandölum í Marakó, Rúrí (1951) sem leikur sér að landakortum frá þremur heimsálfum, og Ragna Róbertsdóttir (1945) með sterkan gólfskúlptúr. Jóhanna Bogadóttir (1944) er með röð teikninga sem eru í senn umrót og ójafnvægi, eða bæði. Hrafnkell Sigurðsson (1963) leikur sér með myndavél af ísformum á Skálafelli, fjalli sem límir sig við Esjuna, fjall Reykjavíkur í austur. Síðan er það Alessa Brossmer (1988) þýsk / íslensk listakona sem endurskapar jökla, í þrívídd. Jöklar sem þekja meira en tíunda hluta landsins, eru allavega bæði vatn og loft, og smá jörð. En með engan eld, þótt sýningin kveiki smá í manni.







Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
16/06/2025 – RX1R II, 2.0/35mm Z
: