Alveg milljón

Alveg milljón

Suðaustan við Melrakkasléttuna er Langanes, milli Þistilfjarðar, og Bakkafjarðar. Annes í Norður-Þingeyjarsýslu sem tegir sig rúma 40 kílómetra til norðausturs út í Norður-Íshafið. Hrjóstrugt en ákaflega sumarfallegt, þar sem örugglega milljón fuglar fegra himinninn, en ekkert mannfólk hefur þar fasta búsetu í dag. Þarna við ysta haf, var alltaf fámennt, byggðin lagðist af á nesinu fyrir rúmri hálfri öld, en þorpið Þórshöfn, í botni Þistilfjarðar er enn spell lifandi, fallegt þorp með hátt í 400 íbúa. En það eru fáir staðir á Íslandi sem er eins gefandi heim að sækja eins og Langanes. Í fyrsta lagi, er þarna einstakt fuglalíf yfir sumartímann. Í öðru lagi, eru fáir staðir þar sem maður getur verið einn og ótruflaður í einstakri náttúru, og þarna norður á Langanesi. Í þriðja lagi frá því um miðjan maí og fram lok júlí, er enginn staður í lýðveldinu þar sem miðnætursólin er eins falleg, nema ef til vill á Rauðanúpi, rétt, norðar á Melrakkasléttunni. 

Torfær slóði liggur eftir endilöngu nesinu, að Fonti, en þar hefur verið viti síðan 1910, núverandi viti var reistur árið 1950
Mikill rekaviður er á Langanesi
Miðnætursól við Stóra-karl við Skoravíkurbjarg. En þarna er næst stærsta súlubyggð landsins með yfir 500 pör
Þórshöfn á Langanes
Horft í átt að Svínalækjartanga0507 Miðnætursól við Stóra-karl við Skoravíkurbjarg. En þarna er næst stærsta súlubyggð landsins með yfir 500 pör
Horft af Melrakkasléttu, yfir Þistilfjörð að Langanesi
Gunnólfsvíkurfjall (719m) er hæsta fjallið á Langanesi, uppá fjallinu er NATO með ratsjárstöð. Horft á fjallið frá vegi 85, á Brekknaheiði, milli Þórshafnar og Bakkafjarðar

Langanes  27/05/2025 – A7R III, RX1R II : FE 1.2/50mm GM, FE 2.8/100mm GM, FE 1.8/135mm GM, 2.0/35mm ZMyndatextar :