Það var mikið um að vera niður við Reykjavíkurhöfn snemma í morgun, verið að gera skip klár fyrir komandi daga og vikur á veiðum.

Fimmtíu milljarða búbót

Í síðustu viku gaf Kristján þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra út reglugerð í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunnar um veiðar á allt að 662 þúsund tonnum af loðnu. Gefur það væntingar um stærstu loðnuvertíð í allavega 20 ár.  Heildarkvótinn fyrir loðnuvertíðina þetta árið eru 940 þúsund tonn, en í samræmi við alþjóðlega samninga fær Ísland 80% kvótans í íslenskri landhelgi. Áætlað aflaverðmæti þessarar vertíðar er ekki undir 50 milljörðum íslenskra króna, sannkallaður happafengur fyrir íslenskt efnahagslíf.  

Reykjavík  18/10/2021 07:42 – A7R IV : FE 1.4/24 GM
Ljósmynd og texti : Páll Stefánsson

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0