Hjónin Guðný Einarsdóttir og Þórður Jónsson máluð á kirkjubekk frá Stóru-Laugardalskirkju vestur í Tálknafirði frá árinu 1699

Gersemar þjóðar

Í skugganum, er ljósmyndasýning sem stendur fram á haust í Þjóðminjasafninu. Sýninging varpar ljósi á konur sem voru frumkvöðlar í ljósmyndun á Íslandi, Færeyjum og í  Danmörku á síðari hluta 19. aldarÞjóðminjasafn Íslands er eitt að lykilstofnunum landsins, þar sem gersemar frá fortíð til nútíðar eiga sér heimili. Þjóðminjasafnið var stofnað árið 1863 og hét þá Forngripasafnið, og var Sigurður Guðmundsson (1833-1874) málari, aðalhvatamaður að stofnun safnsins. Fyrstu árin var safnið til húsa á lofti Dómkirkjunnar, síðan var það flutt í fangelsið á Skólavörðustíg þar sem safnið var lengi til húsa, áður en það flutti í Landsbankahúsið í Austurstræti. Þaðan fór það á efstu hæðina í Safnahúsinu á Hverfisgötu. Þjóðin gaf sér síðan sér byggingu í tilefni sjálfstæðisins árið 1944, sem opnaði fyrir almenning árið 1950 á Suðurgötunni, og hefur verið þar allar götur síðar. Þjóðminjasafn íslands er miðstöð þjóðminjavörslu og rannsókna á menningarsögulegum minjum á Íslandi.

Þjóðminjasafn Íslands við Suðurgötu

 

Íslensk baðstofa frá c.a.1850 á Þjóðminjasafninu

Reykjavík 27/05/2022  11:14 – 12:44 : A7R IV : FE 1.8/20mm G
Ljósmyndir og texti : Páll Stefánsson

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0