Öskjuhlíðin í miðri höfuðborginni er aðeins 90 m lægri en Møllehøj hæsta fjall Danmerkur, sem er 170,86 metrar yfir sjávarmáli. Á toppi Öskjuhlíðar er Perlan, hitaveitutankar, veitingastaðir og útsýnispallar sem gefa góða sýn yfir höfuðborgarsvæðið, vestur að Gróttu og yfir Reykjavíkurflugvöll, norður yfir Hlíðarnar að Esju, að Bláfjöllum í austri og að Reykjanesskaganum í suðri og suðvestri. Hæðin, sem var bara stórgrýtt hæð fram undir 1940, þegar var farið að rækta þar skóg og leggja kirkjugarð, því að í suðurhlíðum hæðarinnar er stærsti kirkjugarður landsins, Fossvogskirkjugarður. Í dag við Nauthólsvík, undir Öskuhlíðinni er annar stærsti háskóli landsins, Háskólinn í Reykjavík, á Menntavegi 1. Öskjuhlíð með sína fallegu hjóla og gangstíga, er vel heppnaður heimur til að njóta útivistar í miðri höfuðborginni.
Reykjavík 25/07/2022 : A7RIV, RX1R II : FE 1.8/135mm GM, 2.0/35mm Z
Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson