Lengsta á landsins Þjórsá, liðast hér um á sunnanverðum Sprengisandi. Sprengisandsleið er forn þjóðleið, milli Norður- og Suðurlands, sem í dag er fær fjórhjóladrifsbílum yfir há sumarið. Þótt Sprengisandur sé hrjóstrugur, milli Hofs- og Vatnajökuls, má finna þar frið, og æpandi þögn sem er svo einstök. Óbyggt hálendi landsins er einstakt, þar sem stór svæði, eru enn ósnortin, náttúra, óbreytt í hundruð, ef ekki þúsundir ára.