Emstrur er gróðurlítið en fallegt afréttarland Rangæinga, norðvestan við Mýrdalsjökul. Fjölsóttasta gönguleið lands Laugarvegurinn frá Landmannalaugum í Þórsmörk, liggur að stórum hluta um Emstrur. Ferðalög um Emstrur voru áður fyrr ákaflega erfið, því vatnsmiklar ár tálmuðu för. Það er fyrir um hálfri öld sem göngubrýr eru byggðar yfir vatnsmestu árnar, skáli Ferðafélags Íslands er reistur og Laugavegurinn verður til sem stikuð leið. Í Emstrum er einnig Markarfljótsgljúfur, eitt fegursta gljúfur landsins, sem myndaðist þegar jökulhlaup hljóp fram úr jökullóni norðan við núverandi gljúfur eftir eldgos í Mýrdalsjökli fyrir um 2000 árum.







Langanes 27/05/2025 – A7R III, RX1R II : FE 1.2/50mm GM, FE 2.8/100mm GM, FE 1.8/135mm GM, 2.0/35mm ZMyndatextar :