Velkominn

Jólasteming í Hafnarfirði

Hafnarfjörður er örugglega í spennadi keppni við Rovaniemi  í Finnlandi  að vera jólalegasti staður á norðurhveli jarðar. Enda er einstök stemming á aðventunni í þessum þriðja fjölmennast bæ landsins. Icelandic Times / Land & Saga brá undir sig betri fætinum og heimsótti miðbæinn og auðvitað Hellisgerði, útivistarsvæði sem er jafn spennandi sumar sem vetur. Sem er auðvitað einstakt. Rovaniemi hefur hreindýr meðan Hafnarfjörður hefur bæði hraun og Leppalúða. Náði ekki mynd af kauða, enda á endalausum hlaupum á þessum árstíma.
Á flugi á Strandgötunni
Jólamarkaðurinn í Hafnarfirði
Alltaf gaman á Jólamarkaðinum í Hafnarfirði
Í Hellisgerði
Í góðum fíling
Það eru hreindýr í Hellisgerði, nokkuð minni en í Rovaniemi í Finnlandi
Hafnarfjörður 23/12/2024 : A7C R – FE 1.2/50mm GM
Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson