Þeir eru fimm ljósmyndararnir sem sýna galdra sýna á Listasafni Íslands á sýningunni Nánd hversdagsins / Intimacies of The Everyday. Þegar komið er inn í sal fjögur, og haldið til vinstri, blasir barnæskan við okkur í myndröð Joakim Eskildsen (DK) og sýningunni líkur á okkar síðustu metrum í myndröð Sally Mann (US). Á milli æskunnar og hins óumfrýanlega eru myndraðir af ást, unglingsárum, og hversdagsleika eftir Agnieszku Sosnowska (IS), Orra Jónsson (IS) og Niall McDiarmid (SCO). Sýningarstjóri er Pari Stave, sem velur ákveðnar myndraðir úr höfundarverki ljósmyndaranna. Sýninging hverfist um þá hugmynd að ákveðin augnablik verða til, þegar fullkomið traust og væntumþykja ríkir milli ljósmyndara og þeirra sem detta inn í myndarammann. Frábær sýning, hreinn galdur.
Reykjavík 30/01/2025 : A7C R – FE 1.4/24mm GM, FE 1.2/50mm GM
Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson