Duus safnahús er lista- og menningarmiðstöð Reykjanesbæjar. Mjög fjölbreytt menningarstarf og sýningarhald er rekið í þessum gömlu verslunar- og fiskvinnsluhúsum í hjarta Keflavíkur. Elsta húsið er Bryggjuhúsið reist árið’ 1877, fyrir næstum því 150 árum. Það var fyrir rúmum aldarfjórðungi sem Reykjanesbær keypti húsalengjuna og hóf endurbyggingu og bætur fyrir safna- og menningarsafn. Þeim var lokið fyrir tíu árum, og 2016 friðlýsti Minjastofnun byggingarnar sem eru nú allar samtengdar á smekklegan hátt. Í húsaröðinni eru sjö sýningarsalir, og þegar Land & Saga/ Icelandic Times átti þarna leið um, var ansi fróðlegar og fjölbreyttar sýningar í þessu höfuðsafni Reyknesinga.
Reykjanes 18/11/2024 : RX1R II, A7R IV – 2.0/35mm Z, FE 1.8/20mm G
Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson