Hér kemur myndasyrpa, myndir sem sýna fegurð Reykjavíkur, þegar þykkt lag af snjó lagðist yfir höfuðborgina. Icelandic Times / Land & Saga var í miðborginni, til að fanga stemminguna. Lengst í Hólavallarkirkjugarði, stærsta kirkjugarði landsins frá 19. öld. Kirkjugarði sem stendur vestur af Suðurgötu og var vígður árið 1838. Hólavallakirkjugarður var orðinn fullur, rétt um hundrað árum síðar, árið 1932, þegar Fossvogskirkjugarður var tekinn í notkun. Þrátt fyrir að hafa verið í garðinum drjúga stund, í einstakri fegurð að mynda, sá ég einungis einn mann í garðinum allan tímann. Reyndar með snjóþotu í eftirdragi, með dúðuðu barni sem örugglega naut dagsins. Í miðborginni var aftur á móti fullt af fólki, heimamönnum og útlendingum að leika sér í snjónum. Hér koma semsagt myndir af fannferginu í Reykjavík, nú í lok janúar.
Reykjavík 26/01/2025 : A7C R, A7R IV – FE 1.4/24mm GM, FE 1.2/50mm GM
Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson